Nýtt lúkk; nýtt líf.. ;)
Hæ:) Hvernig lýst ykkur á nýja lúkkið á síðunni minni? ;) sætt er það ekki?![]()
Ég er í smá pásu frá hárgreiðslunni fyrir ykkur sem eruð búin að vera að velta því fyrir ykkur.. málið er að ég á ekki efni á því að vera á samning eins og er.. þannig að maður er að vinna og safna sér pening áður en ég stekk aftur oní djúpu, köldu laugina.. úff.. ég er bara brennd eftir seinustu kellinguna sem ég vann hjá.. en ég er núna að vinna í laugarcafé í world class í laugum.. eða í booztinu þar..
En stutt fréttaskot! Ég bý í mosó hjá mömmu og litla bró! voða fínt sko!:) gott að búa á hótel mamma aftur:)
En svo er það helgin:) ú ég hlakka til;) Við Lea og vonandi fleiri stelpur og strákar erum að fara á Night at the roxburys party í keflavík á laugardaginn!!!8) Við erum ennþá að safna í lið til að fara og vantar því bílstjóra ef einhver vill bjóða sig fram!:D Þetta verður húút!;)
En seinasta helgi.. uu.. hvað gerði ég aftur.. JÁ!;) Við Fannar kíktum á Begga og hans konu sem búa rétt hjá mér í mosó.. svo kíktum við á einhverja skítabúllubar í mosó rétt fyrir lokun og drifum okkur bara heim og við Fannar krútt vorum bara heima daginn eftir í þynnku að horfa á kassann..!:)
en það er ekki fleira sem ég hef að segja í þetta sinn.. fariði vel með ykkur:)
=*
